0:00:00
-65 days 11:07:01
Contest is over

Beta 2025


Time elapsed

6:00:00

Time Remaining

0:00:00

Starts in

-65 days 11:07:01

Ends in

-65 days 5:07:01

Start

2025-03-08 11:00 CET

End

2025-03-08 17:00 CET

Visit Scoreboard
Log in
Beta 2025

Beta 2025

Rules

  • Keppendur, dómarar og aðstoðarfólk mega vera í stofum á meðan keppnin stendur yfir.
  • Dómarar og aðstoðarfólk mega vera í stofum á meðan hádegishlé stendur yfir.
  • Öðrum er óheimilt að vera í stofunum nema í fylgd yfirdómara.
  • Keppendur mega tala innan eigin liðs og við dómara og aðstoðarfólk á meðan keppnin stendur yfir.
  • Í hádegishléinu er keppendum leyfilegt að tala við aðra, en ekki um verkefnin.
  • Til dæmis má ekki hringja í aðra manneskju eða senda spurningar á spjallborði, samfélagsmiðlum eða öðrum samskiptaforritum þar sem önnur manneskja getur svarað spurningunni.
  • Ef það er einhver spurning sem keppandi vill spyrja varðandi keppnina á meðan hún stendur yfir, skal spyrja í gegnum Clarifications á Kattis eða tala við dómara í stofunni.
  • Hver meðlimur liðs má vera með eina tölvu og hámark einn skjá.
  • Fartölvuskjár telst sem skjár.
  • Það má koma með utanáliggjandi lyklaborð og auka mús við fartölvu.
  • Það má koma með heyrnartól.
  • Það má koma með vasareikni.
  • Keppendur skulu tryggja að þeir séu ekki að trufla aðra keppendur með óþarfa hávaða, til dæmis úr tölvunni sinni, hávær vélræn lyklaborð eða með því að tala of hátt.
  • Óheimilt er að nota síma, snjallúr, í keppninni.
  • Setja skal síma, snjallúr og önnur stafræn tæki í töskuna sína.
  • Ekki má nota stórt mállíkan (LLM) í keppninni til að leysa verkefnin. Dæmi um LLM eru ChatGPT, Gemini, LLama, Claude, Grok, Copilot, Tabnine, og fleiri.
  • Það má leita á netinu.
  • Það má koma með bækur.
  • Það má koma með forskrifaðan kóða.
  • Það má ekki taka mat með í stofurnar.
  • Það má vera með drykki í lokuðu íláti.
  • Passa að ganga snyrtilega um stofuna.